Í kjölfar þess að lagt var fram frumvarp um breytingu á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar hefur orðið nokkur
umræða um mismunandi kyndingarkostnað á hinum ýmsu stöðum á landinu.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því að niðurgreiðslur til húshitunar verði auknar verulega til þess hluta landsmanna þar sem
verðið er hæst, en þar er átt við að um 10% landsmanna búa við mun hærri kyndingarkostnað en hin 90% landsmanna.
Til þess að fjármagna þessar auknu niðurgreiðslur gerir frumvarpið ráð fyrir því að skattur verði lagður á raforku og
heitt vatn þannig að hann nemi 0,10 kr. á hverja kílóvattstund af seldri raforku og verði 1% skattur á smásöluverð heita vatnsins.
Norðurorka hf. gerir ráð fyrir að fá umrætt frumvarp til umsagnar líkt og önnur mál sem varða fyrirtækið og viðskiptavini
þess og mun í framhaldinu rýna málið og setja fram á því formlega skoðun.
Rétt er að taka fram og árétta að góður árangur hefur náðst hjá Norðurorku hf. í því að lækka verð heita vatnsins og liðinn er
sá tími að hitaveitan á Akureyri sé með þeim dýrari á landinu.
Ef skoðaður er verðsamanburður milli nokkurra veitna á landinu kemur í ljós að margar af þeim standa vel í samanburði við Orkuveitu
Reykjavíkur sem lengi hefur verið með þeim ódýrari á landinu.
Hér er sett fram dæmi um hús sem notar 750 m3/rúmmetra af heitu vatni á ári.
|
Rúmm. verð |
Fast gjald |
m3 á ári |
Fastagjald |
Samtals |
|
Kr/m3 |
kr/dag |
750 |
kr/ári |
á ári |
Orkuveita Reykjavíkur |
113,72 |
37,50 |
85.290 |
13.688 |
98.977,50 |
HS-veitur |
105,40 |
19,25 |
79.050 |
7.026 |
86.076,25 |
Norðurorka |
98,00 |
51,94 |
73.500 |
18.958 |
92.458,10 |
HEF Egilsstöðum |
97,50 |
36,36 |
73.125 |
13.271 |
86.396,40 |
Selfossveitur |
89,30 |
32,14 |
66.975 |
11.731 |
78.706,10 |
Eins og sjá má er húshitunarkostnaður á mánuði miðað við þessar forsendur um 6.600 til 8.200 krónur á mánuði
eftir veitum en um 7.700 krónur á Akureyri. Hér þarf þó að hafa í huga að vatnshiti er eilítið misjafn milli veitna eða
frá 74°C út á kerfið hér á Akureyri upp í 83°C út á kerfið í Reykjvík sem þýðir að
verðmunur er í raun enn minni milli veitnanna en ofangreindar tölur gefa til kynna. Það jákvæða í þessu öllu er hins vegar að
húshitunarkostnaður á Íslandi er mjög lágur hjá langflestum landsmönnum sé tekið mið af sambærilegum kostnaði hjá
öðrum Norðurlöndum og þótt víðar væri leitað.
Frétt tekin af heimasíðu Norðurorku.