Nemendur Hlíðarskóla héldu upp á Dag mannréttinda barna.
Í tilefni Dags mannréttinda barna stóðu nemendur Hlíðarskóla fyrir kosningu þar sem fjallað var um stefnumál og áherslur sem skipta nemendur mestu máli í nærumhverfi sínu. Krakkarnir stofnuðu „stjórnmálaflokk“ í hverri stofu og mótuðu eigin stefnu.
Kosningarnar voru vel sóttar og veittu nemendum tækifæri til að læra um mikilvægi lýðræðis og að mæta á kjörstað. Þegar úrslitin lágu fyrir var ljóst að flokkurinn Kexkökurnar hafði unnið sigur. Aðaláherslumál flokksins voru að bæta leiksvæðið, nýta fjöruna betur, stækka heimilisfræðistofuna og bæta salatbar í hádegismatinn.
Dagur mannréttinda barna er haldinn 20. nóvember ár hvert og markar hann vitundarvakningu og fræðslu um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þau réttindi sem öll börn eiga að njóta.
Nánar á vef Hlíðarskóla: www.hlidarskoli.is/2024/11/22/dagur-mannrettinda-barna