Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu í Naustahverfi 2. áfanga, samþykkta í bæjarstjórn þann 20. maí 2008. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga.
Deiliskipulagsbreytingin nær til lóðar nr. 2 við Brekatún og felur í sér lóðastækkun til vesturs um 5 m. og að einungis efsta hæð byggingarinnar verði inndregin í stað tveggja efstu hæðanna.
Tillöguuppdráttur og greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 28. maí til 9. júlí 2008, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulagstillögur.
Brekatún 2 - deiliskipulagsuppdráttur.
Frestur til að gera athugasemdir er til og með miðvikudeginum 9. júlí 2008 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
28. maí 2008
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.