Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagsbreytingu Naustahverfis 1. áfanga.
Stígur (3 m breiður) ofan og vestur af Mýrartúni 2,4,6,8,10 og12 er felldur niður. Lóðarmörk áðurnefndra lóða færast til vesturs sem nemur breidd stígsins. Skilmálar og leyfilegt byggingarmagn á áðurnefndum lóðum breytist ekki. Á lóðunum Mýrartún 8,10 og 12 eru kvaðir um lagnir á lóð.
Tillöguuppdráttur mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 24. október 2007 - 5. desember 2007, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: http://www.akureyri.is undir: Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur.
Deiliskipulagsuppdráttur - Mýrartún.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 5. desember 2007 og skal athugasemdum skilað til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
24. október 2007
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.