Halldóra Eydís Jónsdóttir.
Halldóra Eydís Jónsdóttir skóhönnuður heldur fyrirlestur í stofu M01 í Verkmenntaskólanum á Akureyri föstudaginn 1.
nóvember kl. 15. Halldóra Eydís er fædd og uppalin í náttúruperlunni Mývatnssveit. Hún lærði myndlist og hönnun í
VMA áður en hún hélt til London í skóhönnunarnám.
Myndlist, hönnun, skór og náttúra hafa ávalt verið aðaláhugamál Halldóru. Hið einstaka umhverfið sem hún ólst
upp við hefur alla tíð haft mikil áhrif á hönnun hennar og veitt henni innblástur. Það verður einnig að segjast að líklegt er
að skósafn ömmu Halldóru hafi átt þátt í að móta þennan mikla skóáhuga en henni þótti fátt
skemmtilegra en að leika sér með skóna hennar sem stelpa. Halldóra Eydís útskrifaðist árið 2010 með 1. einkunn í BA
skóhönnunarnámi frá Cordwainers, London College of Fashion.
Upphafslína merkisins HALLDORA af náttúruvænum, einstökum hátískuskóm var síðan kynnt á tískuvikunni í Boston
árið 2011, Handverk og Hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur og New York sýningunni “Fashion Footwear Association of New York”. Hönnun
HALLDORA er yfirleitt innblásin af ósnortinni náttúru til að minna á fegurð hennar og kraft sem þarf að fara vel með. Hráefnið sem
HALLDORA notar er að meirihluta íslenskt leður, fiskiroð, hrosshár og kvikuhraunkristallar. Hönnunin er í heild sinni rómantísk og fáguð
en með öðruvísi yfirbragði og þægindi í huga. Aðgangur á fyrirlesturinn er ókeypis og allir velkomnir.