Myrkur, bílar, börn - förum varlega í umferðinni

Akureyrarbær hefur sett af stað herferðina
Akureyrarbær hefur sett af stað herferðina "Myrkur, bílar, börn" á samfélagsmiðlum.

Akureyrarbær biðlar til ökumanna að fara venju framar varlega í umferðinni þessa dagana þegar myrkasta skammdegið grúfir sig yfir bæinn.

Akureyrarbæ hafa borist ábendingar frá íbúum um afar slæmt skyggni í ljósaskiptunum og þegar dimmt er úti kvölds og morgna. Skorað er á bílstjóra að hafa nú sem endranær augun hjá sér við aksturinn og vegfarendur eru beðnir að nota endurskinsmerki til að auka öryggi sitt og sinna. Því er sérstaklega beint til foreldra og forráðamanna að ganga úr skugga um að börnin okkar beri endurskinsmerki.

Stjórnendur vélknúinna ökutækja sjá vegfarendur með endurskin fimm sinnum fyrr en ef þau eru ekki notuð.

Ýmsar gagnlegar upplýsingar um endurskinsmerki og notkun þeirra er að finna hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan