Kiwanisklúbburinn Grímur.
Mikil stemning hefur ríkt í Grímsey í marsmánuði þar sem karlmenn eyjarinnar hafa keppst við að safna yfirvaraskeggi í tilefni af
Mottumars, árlegu átaki Krabbameinsfélagsins. Kiwanisklúbburinn Grímur tekur þátt í átakinu annað árið í
röð og inn á vefsíðu átaksins, mottumars.is, má sjá árangur kappanna.
Klúbburinn heitir eftir Grími nokkrum sem talinn er hafa verið fyrstur manna til að reisa sér bú í eyjunni. Auk þeirra félaga eru 14
einstaklingar skráðir til leiks í Grímsey og því mikil gróska í skeggsöfnun þeirra Grímseyinga.
Áheitasöfnun Krabbameinsfélagsins vegna Mottumars lýkur á hádegi á næstkomandi föstudag, 22. mars. Söfnunarfénu verður
varið í að auka þekkingu íslenskra karlmanna á forvörnum gegn krabbameinum og að efla vísindarannsóknir. Þeir sem vilja heita á
keppendur og leggja góðu málefni lið geta gert það HÉR.