Hreinsistöð fyrir metangas.
Norðurorka hefur undirritað samning um kaup á gashreinsistöð frá fyrirtækinu Greenlane–Flotech í Svíþjóð. Stöðin
hreinsar metan úr svonefndu hauggasi sem unnið verður úr gömlu sorphaugunum á Glerárdal.
Mjög góð reynsla er komin á stöðvarnar sem Greenlane-Flotech hefur framleitt undanfarin ár og þær byggja á þekktum
tæknilausnum sem eru margreyndar.
Stöðin er svonefnd vatnshreinsistöð sem vísar til þess að vatn gegnir lykilhlutverki í að skilja metangasið frá öðrum lofttegundum
í hauggasinu. Stöðin er 130 Nm³ að stærð sem þýðir að hún á að geta annað um 600.000 Nm³ á ári
miðað við 8.000 tíma keyrslu. Þetta magn samsvarar um 600 svonefndum fólksbílaígildum en áætlanir gera ráð fyrir að
stórnotendur, þ.e. stærri bílar, verði dágóður hluti þeirra sem nota munu gasið. Í áætlunum verkfræðistofunar
Mannvits um magn hauggas á Glerárdal er miðað við að gasið í haugunum geti endst til ársins 2030 að lágmarki miðað við
ofangreinda vinnslu.
Verð stöðvarinnar með uppsetningu er um 115 milljónir króna en þá er ótalinn kostnaður við jarðvegsframkvæmdir við
undirstöður og lóð sem verður austan við hitaveitutank Norðurorku hf. við Súluveg. Afgreiðslustöð fyrir metanið mun hins vegar rísa
á lóð sem verður á gatnamótum Súluvegar og Miðhúsabrautar vestan Mjólursamsölunar. Afgreiðslustöðin samanstendur af
tækjum sem þjappa gasinu, geymslukútum og búnaði til að dæla gasinu á ökutæki. Þessa daganna er unnið að kaupum á
þessum búnaði.
Áætlanir gera ráð fyrir að hægt verði að taka stöðina í notkun síðsumars 2013.