Markmiðið að stuðla að meiri virkni eldri borgara

Að lokinni undirritun samningsins. Karl Erlendsson formaður EBAK og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjó…
Að lokinni undirritun samningsins. Karl Erlendsson formaður EBAK og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri.

Í gær var undirritaður nýr samningur Akureyrarbæjar og Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) sem gildir til ársloka 2025.

Með samningnum taka Akureyrarbær og EBAK höndum saman um að tryggja eldri borgurum á Akureyri aðgang að eins góðu félags- og tómstundastarfi og þörf er á hverju sinni. Samningurinn felur í sér að Akureyrarbær leggur EBAK til húsnæði og rekstur þess, starfsfólk vegna starfs í félagsmiðstöðvum og rekstrarstyrk að upphæð 5 milljónir króna á samningstímanum. EBAK skipuleggur ýmsa starfsemi í félagsmiðstöðvum eldri borgara og virkjar frumkvæði þeirra til ánægjulegrar samveru.

Markmið samningsins er að tryggja og viðhalda andlegri, félagslegri og líkamlegri færni þeirra til að njóta efri áranna eftir vilja og getu hvers og eins. Félags- og tómstundastarfi fyrir eldri borgara á vegum Akureyrarbæjar er fyrst og fremst ætlað að skapa þær ytri aðstæður sem þarf til að efla frumkvæði, sjálfstæði og áhuga og stuðla að meiri virkni og þátttöku eldri borgara.

Félagsmiðstöðvar eldri borgara í Bugðusíðu og Víðilundi eru opnar allt árið en opnunartími og þjónustuframboð er þó minna í sniðum yfir sumartímann.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan