Margt á döfinni hjá LA

Þrjár býsna ólíkar en stórskemmtilegar og vinsælar sýningar verða í gangi hjá Leikfélagi Akureyrar á næstu vikum og um páskana þegar fjöldi landsmanna leggur leið sína til bæjarins. Þetta eru sjóræningjaleikritið Gulleyjan, Saga þjóðar með Hundi í óskilum og Afinn með Sigurði Sigurjónssyni í aðalhlutverki sem sýndur verður skömmu eftir páska.

Sýningar á sjóræningjaleikritinu Gulleyjunni eru enn í fullum gangi hjá Leikfélagi Akureyrar. Aðsóknin hefur verið frábær og hafa nú mörg þúsund gestir komið á sýninguna. Einnig eru gagnrýnendur sammála um að þetta sé kraftmikil og stórskemmtileg fjölskyldusýning. Um er að ræða frægustu sjóræningjasögu allra tíma í nýrri íslenskri leikgerð eftir Karl Ágúst Úlfsson og Sigurð Sigurjónsson. Valinn hópur leikara fer á kostum og þar er Björn Jörundur Friðbjörnsson fremstur meðal jafningja í hlutverki Langa-Jóns Silfurs. Gulleyjan er ævintýraleg sýning fyrir alla fjölskylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi páfagaukum, kostulegum persónum og eldfjörugri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Sýningar munu halda áfram langt inn í apríl mánuð.

Stórsveitin Hundur í óskilum fer í gegnum Íslandssöguna á hundavaði í tali og tónum í sýningunni Saga þjóðar. Sýningin minnir helst á sirkus eða uppistand. Notuð eru hin ýmsu hljóðfæri, eldhúsáhöld og önnur hjálpartæki í þessum tónlistargjörningi. Sýningin fékk afar góðar viðtökur þegar hún var sýnd hjá leikfélaginu fyrr í vetur og komust færri að en vildu. Hundarnir hafa síðan ferðaðist suður og heillað leikhúsgesti þar upp úr skónum. Nú býðst leikhúsgestum á Akureyri annað tækifæri á að sjá þessa fínu sýningu um páskahelgina hjá Leikfélagi Akureyrar.

Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, Sigurður Sigurjónsson, birtist hér í nýjum sprenghlægilegum íslenskum einleik sem fær áhorfendur til að veltast um af hlátri. Afinn er hlýlegt gamanverk með stórt hjarta. Sýnt 12., 13., 21. og 22. april hjá Leikfélagi Akureyrar.

Miðasala og frekari upplýsingar um sýningar á www.leikfelag.is og í síma 4 600 200.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan