Verk eftir Guðbjörgu Ringsted.
Síðasta sýningaropnun ársins í Sjónlistamiðstöðinni verður laugardaginn 2. nóvember kl. 15 þegar Guðbjörg Ringsted og
Rannveig Helgadóttir opna sýninguna Mandala/Munstur í Ketilhúsinu.
Guðbjörg Ringsted var bæjarlistamaður Akureyrar 2012 en á því ári voru 30 ár liðin síðan hún hélt sína
fyrstu einkasýningu á Akureyri. Það var við vinnu með blýantinn árið 2007 sem lauf og blóm fóru fyrst að birtast í verkum
Guðbjargar. Fljótlega skipti hún blýantinum út fyrir pensil og akrýlliti og plöntumunstrin héldu áfram að blómstar með
tilvísunum í þjóðbúning íslenskra kvenna.
Mandalan, sem grundvallast á hringforminu og margþættum munstrum því tengdu, skipar öndvegi í málverkum Rannveigar Helgadóttur.
Orðið mandala er ættað úr sanskrít og merkir "heilagur hringur" eða hringrás eilífðarinnar og táknar alheiminn og eðli hins
guðlega. Um þúsundir ára hafa frumbyggjar Norður-Ameríku, hindúar og búddistar notað mandölur við hugleiðslu til að skerpa
meðvitund sína og koma á jafnvægi líkama hugar og anda.
Sýningin stendur til 8. desember og er opin alla daga nema mánudaga og þriðjudaga kl. 13-17. Aðgangur er ókeypis.