Frá vinnustofunni.
Á mánudaginn fór fram í menningarhúsinu Hofi, fyrsta vinnustofan í verkefninu Aðlögun sveitarfélaga að loftslagsbreytingum. Akureyrarbær er eitt fimm sveitarfélaga sem tekur þátt í verkefninu sem er til tveggja ára og er samstarfsverkefni umhverfis, -orku og loftslagsráðuneytis, Byggðastofnunar, Veðurstofu Íslands og Skipulagsstofnunar og ýmissa annara stofnana og hagaðila.
Markmið verkefnisins er að marka skýran farveg fyrir íslensk sveitarfélög þegar kemur að mótun aðgerða og ferla til aðlögunnar að áhrifum loftslagsbreytinga. Afurðir verkefnisins muni þannig gagnast íslenskum sveitarfélögum til að hámarka aðlögunargetu sína, grípa til aðgerða og lágmarka um leið efnahagslegt tjón og neikvæð áhrif loftslagsbreytinga á íslenskar byggðir, atvinnuvegi, innviði, samfélög og byggðaþróun.
Viðfangsefni Akureyrarbæjar í verkefninu snúa sérstaklega að gróðureldum, aurskriðum og sjávarflóðum og meðal þátttakenda í vinnustofunni var starfsfólk Akureyrarbæjar sem hefur snertifleti við þessi viðfangsefni. Þar voru jafnframt fulltrúar fyrirtækja og stofnana á svæðinu og aðrir hagaðilar en voru þátttakendur um 40 talsins.
Markmið vinnustofunnar var að kortleggja fyrri atburði og breytingar sem orðið hafa undanfarin ár og áratugi innan sveitarfélagsins sem tengja má við umræddar loftslagsvár. Flutt voru áhugaverð erindi sem tengjast verkefninu og rýnt var í viðbrögð við fyrri atburðum og þær aðgerðir sem gripið var til í kjölfarið. Einnig voru skoðuð möguleg áhrif frekari breytinga og atburða í framtíðinni á alla helstu þætti samfélagsins og fram komu mikilvægt sjónarmið sem nýtast í næstu skrefum verkefnisins.