LMA frumsýnir Chicago

 

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri (LMA) frumsýnir söngleikinn Chicago í kvöld kl. 20. Leikstjóri er Laufey Brá Jónsdóttir og tónlistarstjóri Björn Þórarinsson.

 

Söngleikurinn Chicago er kabarettsöngleikur um konur í kvennafangelsi, um sögu þeirra og drauma, en kvikmyndin sem gerð var eftir þessum söngleik hefur farið sigurför um heiminn og nú nýverið unnið til nokkurra Óskarsverðlauna. Að sýningu LMA starfar fjöldi fólks, leikarar og dansarar eru 20 talsins og 8 manna hljómsveit sér um flutning tónlistarinnar. Auk leikara og tónlistarfólks eru margir sem aðstoða með einum eða öðrum hætti við búninga, förðun, leiksvið, lýsingu og margt fleira svo hópurinn í heild er varla undir 40 manns.

Sýningar LMA á Chigago verða í Samkomuhúsinu á Akureyri.

 

Fyrirhugaðar sýningar eru sem hér segir:


    föstudaginn 28. mars klukkan 19.00 og 01.00
    sunnudaginn 30. mars klukkan 14.00 og 20.00
    mánudaginn 31. mars klukkan 20.00
    þriðjudaginn 1. apríl klukkan 20.00
    miðvikudginn 2. apríl klukkan 19.00 og 22.30
    fimmtudaginn 3. apríl klukkan 19.00 og 23.30

Leikfélag MA tekur við miðapöntunum í síma 865 0202 og þar mun auk þess vera hægt að fá hóptilboð.

 

Ljósmynd og frétt af www.ma.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan