Öskudagurinn, sem af mörgum er talinn einn skemmtilegasti dagur ársins, var haldinn hátíðlegur á Akureyri í dag, eins og hefðin kveður á um. Krakkar á öllum aldri klæddust búningum og flökkuðu á milli stofnana og fyrirtækja í bænum, þar sem þau sungu í skiptum fyrir sælgæti. Sem betur fer lék veðrið við krakkana sem gerði daginn enn betri.
Í miðbæ Akureyrar var líf og fjör, þar sem furðuverur af öllum stærðum og gerðum voru á kreiki, vopnaðar pokum fullum af nammi. María Helena Tryggvadóttir var á staðnum og fangaði litríka stemninguna í myndum.
Í Hrísey var einnig mikið um dýrðir, þar sem börnin slógu köttinn úr tunnunni og gengu svo á milli fyrirtækja og heimila á eyjunni. Ásrún Ýr Gestsdóttir var á staðnum og myndaði herlegheitin.
Þó nokkrir hópar gerðu sér ferð í Ráðhúsið þar sem engin önnur en Elsa úr Frozen tók á móti syngandi krökkunum. Takk fyrir komuna öll!