Þátttakendur listvinnustofunnar ásamt Selmu Hreggviðsdóttur, myndlistarmanni. Ljósmynd: Almar Alfreðsson.
Helgina 6.-7. janúar fór fram þriðja og síðasta listvinnustofa verkefnisins Allt til enda - Listvinnustofur barna í Listasafninu á Akureyri. Selma Hreggviðsdóttir, myndlistarmaður, bauð börnum á aldrinum 6 til 9 ára að kynnast ferli listamannsins. Þátttakendur unnu bæði samvinnuverkefni og sjálfstæð verk. Áhersla var lögð á að skoða gaumgæfilega hluti sem fólk gefur ekki mikinn gaum í daglegu lífi. Hvaðan koma hlutir og hvaða hlutverki gegna þeir í lífi okkar? Er pizza bara pizza? Hvað er listsýning? Vinnustofan var óvissuferð þar sem þátttakendur sköpuðu og höfðu áhrif á framvindu og niðurstöðu verunnar saman í Listasafninu.
Börnin tóku virkan þátt í öllu ferlinu, allt frá því að leita sér innblásturs, skapa verkin í samstarfi við Selmu og sýna afraksturinn á sérstakri sýningu sem Hlynur Hallsson, safnstjóri, opnaði formlega í safnfræðslurými Listasafnsins. Sýningin stendur til 4. febrúar 2024.
Verkefnið Allt til enda - Listvinnustofur barna hófst árið 2021 en þar fá börn á grunnskólaaldri tækifæri til að láta ljós sitt skína á sinni eigin sýningu sem þau undirbúa frá upphafi til enda. Myndlistarvinnustofan með Selmu er níunda listvinnustofan. Árið 2023 var verkefnið styrkt af Safnasjóði og Akureyrarbæ. Verkefnastjóri er Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi.
Vonir standa til þess að hægt verði að halda áfram með þetta vinsæla verkefni á árinu.
Þátttakendur listvinnustofunnar:
- Amanda Þorsteinsdóttir
- Elma Lind Halldórsdóttir
- Erika Ósk Halldórsdóttir
- Glóa Hrannarsdóttir
- Helga Ísaksdóttir
- Ísabel Talía Cambray Alexdóttir
- Margrét Erla Karlsdóttir
- Stella Hansen
- Yrsa Líf Agnarsdóttir
Smellið á myndirnar að neðan til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.