Líflegt starf í félagsmiðstöðvum fólksins

Birna Guðrún Baldursdóttir, forstöðukona og iðjuþjálfi, segir öll eldri en 18 ára velkomin að taka þ…
Birna Guðrún Baldursdóttir, forstöðukona og iðjuþjálfi, segir öll eldri en 18 ára velkomin að taka þátt í starfinu.

Akureyrarbær rekur líflegt og skemmtilegt starf í félagsmiðstöðvum fólksins, Birtu í Bugðusíðu 1, og Sölku í Víðilundi 22, þar sem boðið er upp á fjölbreytta starfsemi, ýmiskonar námskeið, handverk, afþreyingu, hreyfingu og fjölmarga viðburði.

Birna Guðrún Baldursdóttir, forstöðukona og iðjuþjálfi, segir öll eldri en 18 ára velkomin að taka þátt í starfinu. „Félagsmiðstöðvarnar eru hugsaðar sem virkniúrræði fyrir eldri borgara, öryrkja, fólk sem er án atvinnu, í veikindaleyfi og önnur þau sem eru heima á daginn. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti öllum. Það kostar ekkert að koma í heimsókn og hægt er að skrá sig í þau verkefni eða viðburði sem eru í gangi hverju sinni.“

Í félagsmiðstöðvunum er boðið upp á hádegismat fjóra daga í viku og síðdegiskaffi alla daga nema föstudaga. „Upphaflega voru Birta og Salka hugsaðar sem félagsmiðstöðvar aldraðra en eftir að Punkturinn hætti breyttist starfsemin. Við viljum endilega að sem flestir viti af þessu. Einmanaleiki er vaxandi vandi og það getur verið hættulegt að einangra sig. Fyrsta skrefið er að kíkja í heimsókn – það er eitthvað fyrir alla. Sumir koma á hverjum degi, bara til að fá sér kaffi, lesa blöðin og hitta fólk,“ bætir Birna við.

Hægt er að fylgjast með starfinu á facebook-síðu Birtu og Sölku og á Akureyri.is.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan