Líf og fjör við vígslu á nýju leiksvæði

Ásthildur Sturludóttir á spjalli við nemendur í Síðuskóla. Mynd: Ragnar Hólm.
Ásthildur Sturludóttir á spjalli við nemendur í Síðuskóla. Mynd: Ragnar Hólm.

Nýtt leiksvæði við Síðuskóla var vígt að viðstöddu fjölmenni í morgun en svæðið hefur vakið stormandi lukku meðal nemenda við skólann og íbúa hverfisins.

Ólöf Inga Andrésdóttir, skólastjóri Síðuskóla, stýrði stuttri dagskrá sem hófst á því að Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, sagði nokkur orð, óskaði nemendum til hamingju með nýja leiksvæðið og bað þá að passa það vel, ganga vel um það, svo hægt yrði að njóta þess um ókomin ár.

Því næst sungu nokkrir nemendur úr 6. bekk skólasönginn "Við sem erum saman í Síðuskóla" og loks var Eva Wium Elíasdóttir fyrrverandi nemandi við skólann kölluð á svið. Eva var á sínum tíma mjög dugleg við að hvetja til þess að við skólann yrði körfuboltavöllur en hún leikur nú með körfuknattleiksliði Þórs og er í A-landsliði Íslands. Segja má að nú hafi draumur Evu orðið að veruleika og völlurinn hennar og allra hverfisbúa loks litið dagsins ljós.

Þegar lóðin var skipulögð var leitað álits nemenda sem komu með tillögur að tækjum og var unnið úr þeim við hönnun svæðisins. Ólöf Inga, skólastjóri, segir að nemendur hafi fengið nánast allt sem þeir óskuðu sér. Hönnuðir og starfsfólk umhverfis- og mannvirkjasviðs tóku alltaf tillit til óska nemenda og var samvinnan frábær frá A-Ö. Einnig ber að nefna að stjórn foreldra- og kennarafélags Síðuskóla, FOKS, var mjög dugleg við að aðstoða við alla hugmyndavinnu og framkvæmdina. "Útkoman er enda eins og best verður á kosið. Að fá svona vel útbúna skólalóð er mikil lyftistöng fyrir hverfið og hér hefur verið líf og fjör síðan lóðin var tilbúin," sagði Ólöf Inga Andrésdóttir.

Smellið á myndirnar að neðan til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan