Vegna framkvæmda við nýbyggingar á reitnum sem afmarkast af Hafnarstræti, Austurbrú og Drottningarbraut, er nauðsynlegt að flýta breytingu á akstursfyrirkomulagi vestan við gömlu umferðarmiðstöðina að Hafnarstræti 82. Breytingin er samkvæmt gildandi deiluskipulagi.
Einstefnuhluti Hafnarstrætis verður þannig framlengdur um 100 metra og jafnframt er nauðsynlegt að breyta hluta bílastæða í 45° stæði í stað 90° eins og þau eru í dag (sjá nánar á meðfylgjandi mynd).
Beðist er velvirðingar á því með hversu stuttum fyrirvara gera þarf þessar breytingar.