Mynd: Kristófer Knutsen.
Þriðjudagskvöld, miðvikudag og miðvikudagskvöld (17.-18. október) leita starfsmenn frá umhverfisverkfræðistofunni ReSource International að leka í hitaveitukerfi innan Akureyrar og Ólafsfjarðar fyrir hönd Norðurorku. Fimmtudagur verður til vara ef veðurskilyrði breytast.
Leitað verður að mögulegum leka á hitaveitulögnum í bænum með drónum sem taka hitamyndir úr +50 m hæð. Gögnin nýtast Norðurorku til að stöðva núverandi leka ásamt því að varpa ljósi á mögulegar viðhaldsþarfir og bæta afhendingaröryggi.
ReSource International leitast við að framkvæma verkið hratt og örugglega svo það hafi sem minnst ónæði í för með sér fyrir bæjarbúa. Líklegt er að drónaflugið veki nokkra athygli og því er rétt að komi skýrt fram hvað um er að vera. ReSource International og Norðurorka þakka fyrirfram sýndan skilning og þolinmæði.