Kynningarfundur um Virk efri ár

Kynningarfundur um Virk efri ár verður haldinn í Íþróttahöllinni á morgun, fimmtudaginn 16. janúar, kl. 15:00. Fundurinn fer fram í Teríunni á annarri hæð Íþróttahallarinnar og er opinn öllum áhugasömum. Þar gefst tækifæri til að kynna sér dagskrána, spyrja spurninga og fá allar nauðsynlegar upplýsingar.
 
Á nýju ári heldur Akureyrarbær áfram að bjóða upp á fjölbreytt hreyfiúrræði fyrir íbúa 60 ára og eldri undir merkjum Virkra efri ára. Tvö ár eru síðan verkefnið hófst, og ný dagskrá fyrir árið 2025 sameinar vinsæla viðburði frá fyrri árum og nýjungar eins og bogfimi og gönguskíði.
 
Mánaðargjald fyrir þátttöku í Virkum efri árum verður héðan í frá 3.900 krónur, og fer skráning fram í gegnum Sportabler. Einstaklingar 67 ára og eldri, sem og þeir 60 ára og eldri sem metnir eru með 75% örorku, geta einnig nýtt sér svokallað Hreyfikort. Kortið veitir aðgang að öllu í Virkum efri árum auk ótakmarkaðs aðgangs að sundlaugum, Skautahöllinni og skíðasvæðum Akureyrarbæjar.  Hér eru nánari upplýsingar um Hreyfikortið.
 
Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á vefsíðu Akureyrarbæjar og á Facebook-síðu Virkra efri ára.
 
 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan