Um þessar mundir er unnið að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 vegna stækkunar á íbúðarsvæði og svæði fyrir
þjónustustofnanir í Giljahverfi.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur lagt fram skipulagslýsingu til kynningar á aðalskipulagsbreytingunni í samræmi við 1. mgr. 30. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin liggur frami í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, svo að þeir sem
þess óska geti kynnt sér tillöguna og komið með ábendingar. Tillagan er aðgengileg hér fyrir neðan:
Skipulagslýsing
Þeir sem vilja koma ábendingum til skipulagsnefndar er bent á að senda þær til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð,
600 Akureyri og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.
17. október 2012
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar