Kveikt á jólatrénu

Á laugardag verða ljósin tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi en tréð er gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku. Þess er vænst að mikill fjöldi bæjarbúa og gesta þeirra verði saman kominn á torginu og hefji þar með formlega undirbúning jóla.

Dagskráin er svohljóðandi:

Kl. 14.45  Lúðrasveit Akureyrar leikur létt lög
Kl. 15.00  Leikfélag Akureyrar (leikþáttur)
Kl. 15.10  Stúlknakór Akureyrarkirkju
Kl. 15.20  Ávörp:
               Helgi Jóhannesson konsúll Dana á Akureyri
               Þóra Ákadóttir forseti bæjarstjórnar Akureyrar 

               Kveikt á trénu

Kl. 15.30  Jólasveinar mæta á svæðið, taka lagið og gengið verður í kringum jólatréð
Kl. 15.50  Dagskrá lokið

Kynnir verður Skúli Gautason leikari.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan