Gamla kirkjan á Blönduósi. Mynd: Hörður Geirsson.
Bæjarstjórn Akureyrar sendir samúðarkveðjur til allra þeirra sem eiga um sárt að binda eftir þá voveiflegu atburði sem áttu sér stað á Blönduósi í gærmorgun.
Engin orð fá lýst sorg okkar og vanmætti gagnvart svo skelfilegum atburði. Við erum öll harmi slegin en við erum jafnframt ein stór fjölskylda og stöndum þétt við bakið á því fólki sem á nú um sárt að binda í skugga þessa harmleiks. Við hugsum með hluttekningu og hlýhug til vina okkar á Blönduósi og óskum þess af heilum hug og hjarta að allar góðar vættir verði þeim til hughreystingar og blessunar, styrki og styðji á erfiðum tímum.