Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi Kjarnaskógar – Gróðrarstöðvar, samþykkta í bæjarstjórn þann 27.11.2007, skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skipulagsmörkin liggja í norðri að óbyggðu svæði, í austri meðfram Kjarnabraut, í suðri að Kjarnaskógi og í vestri að tjaldsvæðinu á Hömrum. Markmið skipulagsins er að gera Sólskógum ehf., og Skógræktarfélagi Eyfirðinga kleift að þróa starfsemi sína til frambúðar á svæðinu, með möguleika á þeirri uppbyggingu sem slík starfsemi þarfnast.
Tillöguuppdráttur mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 5. desember 2007 - 16. janúar 2008, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: http://www.akureyri.is undir: Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur.
Deiliskipulagsuppdráttur.
Skýringaruppdráttur.
Greinargerð.
Frestur til að gera athugasemdir er til og með miðvikudeginum 16. janúar 2008 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
5. desember 2007
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.