Keyrum Krossanesbrautina á löglegum hraða

Virðum hámarkshraða á götum bæjarins.
Virðum hámarkshraða á götum bæjarins.

Athygli bílstjóra er vakin á því að hámarkshraði á hluta Krossanesbrautar, frá gatnamótum við Undirhlíð að gatnamótum við Hlíðarbraut, hefur verið lækkaður úr 50 í 30 km/klst.

Þessi lækkun á hámarkshraða er til komin vegna framkvæmda við hið nýja Holtahverfi og verður til frambúðar þegar íbúar hafa flust í hverfið. Settar hafa verið upp vegaþrengingar til að hægja á umferð en þó hefur talsvert borið á því að bílstjórar keyri þennan kafla á ólöglegum hraða.

Virðum hámarkshraðann á Krossanesbraut sem og annars staðar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan