Það er mikið um að vera í Háskólanum á Akureyri í dag í tilefni fullveldisdagsins. Núna kl. 14 hófst málþing með yfirskriftinni "Fallvalt fullveldi" í Stofu L201 á Sólborg og klukkan 16.10 hefst hátíðardagskrá við Íslandsklukkuna sem verður síðan hringt átta sinnum af bæjarlistamanninum Önnu Richardsdóttur.
Dagskráin í háskólanum er svohljóðandi:
Kl. 14.00-16.00: Fallvalt fullveldi? Stofa L201 á Sólborg
Opið málþing þar sem fjallað verður um fullveldið frá öllum hliðum, í fortíð, nútíð og framtíð. Framsögumenn og yfirskrift erinda eru:
Sigurður Líndal - Frelsi og fullveldi á 21. öld.
Eiríkur Bergmann – Er Ísland fullvalda?
Silja Bára Ómarsdóttir - Er fullveldi nauðsynlegt? Sundurliðun og samþjöppun ríkja á 21. öld.
Ágúst Þór Árnason – Fullveldishugtakið togað og teygt
Fundarstjóri er Guðmundur Heiðar Frímannsson.
Kl. 16.10-16.40: Hátíðardagskrá við Íslandsklukkuna á Sólborg.
Ávarp rektors.
Anna Richardsdóttir, bæjarlistamaður hringir Íslandsklukkunni fyrir árið 2008.
Félagar í kór Akureyrarkirkju syngja inn jólamánuðinn.
Kl. 16.40 - 18.00: Hugguleg stund í háskólanum
Öllum boðið upp á kakó og smákökur í matsal skólans, jólatónlistin ómar undir. Listasýningin Íslendingar verður opnuð í bókasafni háskólans en þar er um að ræða samsýningu Gústavs Geirs Bollasonar, Hönnu Hlífar Bjarnadóttur, Véronique Legros og Þórarins Blöndal.