Í klóm internetsins

Á Félagsvísindatorgi við Háskólann á Akureyri verður næstkomandi miðvikudag fjallað um netfíkn íslenskra ungmenna. Háskólinn á Akureyri hefur tekið þátt í Evrópurannsókn á netávana sem mun þegar upp er staðið ná til um 14 þúsund ungmenna í sex Evrópulöndum auk Íslands. Íslenski rannsóknarhópurinn frá HA kynnir niðurstöður sínar og rannsóknaraðferðir.

Mikill meirihluti barna í Evrópu notar internetið daglega og hefur verið áætlað að börn á aldrinum 9-16 ára verji að meðaltali tæpum 90 mínútum á dag á internetinu, mismikið eftir aldri og eftir löndum. Íslensk börn og ungmenni eru engir eftirbátar jafnaldra sinna annars staðar í Evrópu hvað þetta varðar enda býður netið upp á fjölbreyttar samskiptaleiðir, menntun og skemmtun. Samhliða aukinni notkun barna og ungmenna á internetinu hafa vaknað spurningar um áhrif og afleiðingar þessarar notkunar. Sumir fræðimenn hafa viljað ganga svo langt að tala um netfíkn og hafa þannig flokkað óhóflega internetnotkun sem vandamál á borð við áfengisneyslu og vímuefnanotkun. Óhófleg internetnotkun er meðal annars talin hafa letjandi áhrif á árangur í námi, raska fjölskyldutengslum og tilfinningalífi ungmenna. Enn fremur er óhófleg notkun á neti talin tengjast þunglyndi, slökum félagstengslum og aukinni einmanakennd og þá sérlega meðal ungs fólks.

Í erindi sínu á félagsvísindatorgi mun íslenski rannsóknarhópurinn greina frá verkefninu og frumniðurstöðum en einnig rannsóknaraðferðinni sem er nýlunda í rannsóknum á þessu sviði að því leyti að notast er við eigindleg gögn sem greind eru miðlægt. Í rannsóknarhópnum eru þau Kjartan Ólafsson sem er lektor við HA, Eva Halapi, Hjördís Sigursteinsdóttir og Sigrún Sif Jóelsdóttir sem allar eru sérfræðingar við RHA, rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri.

Félagsvísindatorgið hefst kl. 12.00 miðvikudaginn 28. mars og fer fram í stofu M102 að Sólborg við Norðurslóð. Yfirskrift þess er: Í klóm internetsins - algengi og alvarleiki ávananotkunar á neti meðal 15-16 ára ungmenna á Íslandi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan