Mynd: María Helena Tryggvadóttir
Frístundaráð Akureyrarbæjar auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar ráðsins. Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis í samræmi við jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar.
Viðurkenningu geta hlotið:
Fyrirtæki sem hafa:
-Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
-Unnið að því að afnema staðalímyndir kynjanna
-Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi jafnréttis kvenna og karla
-Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni á vinnustöðum
Félög/félagasamtök sem hafa:
-Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
-Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi jafnréttis kvenna og karla
-Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni innan félags
-Veitt leiðbeinendum/þjálfurum fræðslu um jafnréttismál
Einstaklingar sem hafa skarað fram úr í vinnu að jafnréttismálum.
Rökstuddum tilnefningum skal skilað í síðasta lagi 1. apríl nk. í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar sem er aðgengileg hér á heimasíðunni. Hér er bein slóð á umsóknarformið, en fyrst þarf að skrá sig inn í þjónustugáttina með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.