Frístundaráð Akureyrarbæjar auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar sveitarfélagsins. Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Viðurkenningu geta hlotið:
-Fyrirtæki sem hafa:
- Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
- Unnið að því að afnema staðalímyndir kynjanna
- Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi mannréttinda
- Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni á vinnustöðum
-Félög/félagasamtök sem hafa:
- Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
- Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi mannréttinda
- Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni innan félags
- Veitt leiðbeinendum/þjálfurum fræðslu um jafnréttismál
-Einstaklingar sem hafa skarað fram úr í vinnu að jafnréttismálum.
Rökstuddum tilnefningum skal skilað í síðasta lagi 12. apríl nk. í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar sem er aðgengileg hér á heimasíðunni. Hér er bein slóð á umsóknarformið, en fyrst þarf að skrá sig inn í þjónustugáttina með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.