"Hvað er í matinn?" er yfirskrift sumarsýningar Minjasafnsins á Akureyri sem opnuð verður 31. maí kl. 14. Sýningin fjallar um matarmenningu Íslendinga í kaupstað og hvernig hún hefur breyst frá því á 19. öld.
Fjölbreytni í matargerð hefur mikið breyst á ýmsum sviðum þó enn eimi eftir af matarhefðum forfeðranna.Í sýningunni er gefin innsýn í eldhús nokkurra tíma. Elst er hlóðaeldhúsið þar sem litlar breytingar urðu í úrvali og eldun matar svo öldum skipti. Næst er litast um í kokkhúsi frá um 1900. Þá er kolavélin komin til sögunnar og heimilisfólk neytir matar af diskum með hnífapörum í stað þess að borða úr aski í baðstofu. Í eldhúsi frá um 1950 er úrval rafmagnstækja komið til að létta lífið. Loks er eldhús frá um 1970 þá örlar á þeirri alþjóðlegu matarmenningu sem Íslendingar tileinkuðu sér síðar. Eins og margir muna varð hakk og spaghettí vinsæll matur, og kjúklingur og franskar algjör lúxus á þeim tíma. Á sýningunni kynnast gestir safnsins meðal annars gömlum aðferðum við geymslu á mat og ræktun jarðeplna svo eitthvað sé nefnt. Í ár eru einmitt 200 ár liðin frá því samfelld ræktun þeirra hófst á Akureyri.
Í tengslum við sýninguna safnar Minjasafnið á Akureyri munum tengdum matarhefð og eldhúsum. Starfsfólk safnins hvetur gesti til að koma með slíka muni um leið og það skoðar sýninguna. Hver veit nema þinn hlutur rati á sýninguna?
Athygli er vakin á því að í Nonnahúsi er eldhús og búr búið tækjum frá síðari hluta 19. aldar. Af þeim má nefna eldhúsvaskinn og kolavélina. Nonnahús er mjög gott dæmi um kaupstaðarhús, frá kjallara til rjáfurs og því forvitnilegt að skoða. Í gamla bænum í Laufási eru tvær kynslóðir af eldhúsum og búr, sem tala sínu máli um matvælaframleiðslu og hefðir á stórbýli til sveita. Það er því er tilvalið að sækja bæði Nonnahús og Gamla bæinn í Laufási heim í tengslum við sýninguna.
Minjasafnið er opið daglega í sumar kl. 10-17, frá 31. maí til 15. september. Nonnahús er opið frá 1. júní til 30. sept. daglega, á sama tíma. Opið er í Laufási alla daga frá kl. 9-18.

Myndin að ofan er úr safni Gísla Ólafssonar sem er í eigu Minjasafnins á Akureyri. Rósa Sveinbjarnardóttir stendur við fyrstu gasvélina í Hleiðagarði í Saurbæjarhreppi.