Höepfnersbryggja – Siglingaklúbburinn Nökkvi

Tillaga
Tillaga

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að heildarendurskoðun fyrir deiliskipulagið ,,Höepfnersbryggja – Siglingaklúbburinn Nökkvi“  skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2012.

Deiliskipulagssvæðið afmarkast í suðri af Leiruvegi og í vestri af Drottningarbraut.

Skipulagið gerir ráð fyrir nýrri og endurbættri aðstöðu fyrir siglingaklúbbinn Nökkva. Markmið skipulagsins er m.a. að bæta aðstöðu fyrir barna- og unglingastarf, skapa aðstöðu fyrir skemmtibáta auk þess að gera svæðið meira aðlaðandi og aðgengilegra til stangveiða og útivistar fyrir almenning.

Skipulagsuppdráttur með greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 27. júní  til 9. ágúst 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Skipulagsuppdráttur ásamt greinargerð

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 þann 9. ágúst 2012 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

27. júní 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan