Mynd af heimasíðu Norðurorku.
Vegna óvæntra atvika í vinnu við brunna í miðbænum á Akureyri þarf að taka heita vatnið af þegar í stað, en ekki
á morgun eins og til stóð. Lögn gaf sig með þeim afleiðingum að sjóðheitt vatn fór að renna um vinnusvæðið og
því ekki um annað að gera en loka fyrir vatnið.
Heita vatnið fer af hluta Miðbæjarins og af Innbænum. Gert er ráð fyrir að heitavatnslaust verði fram á kvöld (vinsamlega fylgist með
fréttum hér á heimasíðu Norðurorku). Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þeim
óþægindum sem þetta hefur í för með sér.
Nánari upplýsingar um svæðið þar sem vatnið fer af má sjá á meðfylgjandi mynd.