Heiðursviðurkenningar fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar

Talið frá vinstri: Guðmundur Bjarnar Guðmundsson, Hrefna Brynjólfsdóttir, Erlingur Kristjánsson og K…
Talið frá vinstri: Guðmundur Bjarnar Guðmundsson, Hrefna Brynjólfsdóttir, Erlingur Kristjánsson og Kristín Hrönn Hafþórsdóttir með viðurkenningu eiginmans síns, Björns Halldórs Sveinssonar, sem átti ekki heimangengt. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Á íþróttahátíð Akureyrarbæjar og ÍBA sem haldin var í Hofi í síðustu viku voru veittar fjórar heiðursviðurkenningar fyrir vel unnin störf í þágu félags-, íþrótta- og æskulýðsmála í bænum. Þær hlutu Björn Halldór Sveinsson úr Þór, Erlingur Kristjánsson og Hrefna Brynjólfsdóttir úr KA, og Guðmundur Bjarnar Guðmundsson úr Skíðafélagi Akureyrar.

Í umsögnum um fjórmenningana segir:

Erlingur Kristjánsson – Knattspyrnufélag Akureyrar

Erlingur Kristjánsson er fæddur á Akureyri þann 7.maí 1962. Á löngum og farsælum keppnisferli spilaði Erlingur bæði knattspyrnu og handknattleik með meistaraflokkum KA og afrekaði m.a. það að verð í fámennum hópi íþróttamanna sem hafa bæði orðið Íslandsmeistari í handknattleik og í knattspyrnu, og það sem meira er að Erlingur var fyrirliði KA í báðum greinum þegar félagið lyfti Íslandsmeistaratitlinum, sem er líklega einsdæmi.

Sem leikmaður og eftir að keppnisferlinum lauk var Erlingur að sinna þjálfun og hefur komið að þjálfun flesta flokka og greina félagsins, auk þess að hafa verið í ýmsum stjórnar- og trúnaðarstörfum innan KA. Erlingur hefur verið gríðarlega virkur í sjálfboðaliðastarfi KA, sérstaklega fyrir handknattleiksdeild og þá starf kvennaliðs KA/Þórs.

Erlingur sat í stjórn Íþróttabandalags Akureyrar í nokkur ár og er handhafi silfurmerkis ÍBA.

Árið 2019 var Erlingur tekinn inn í goðsagnarhöll Handknattleiksdeildar KA auk þess að vera handhafi gullmerkis KA. Erlingur er óeigingjarn sjálfboðaliði sem gerir allt sem hann getur fyrir félagið sitt.

Hrefna Brynjólfsdóttir - Knattspyrnufélag Akureyrar

Hrefna Brynjólfsdóttir er fædd á Akureyri þann 18. maí 1965. Sem iðkandi lék Hrefna knattspyrnu með KA á sínum yngri árum sem og blak. Hrefna er núna að spila sitt 45. blakár með KA. Samhliða því að spila blak með félaginu hefur Hrefna verið í ýmsum störfum og hlutverkum utan vallar fyrir blakdeild KA síðustu tvo áratugina. Mínútur og klukkustundir Hrefnu í sjálfboðavinnu fyrir félagið eru í þúsunda tali, þar sem hún hefur m.a. verið að sinna störfum á ritaraborði og línudómgæslu í blakleikjum hjá KA.

Það fer ekki endilega alltaf mikið fyrir Hrefnu en hún lætur sig ekki vanta í verkefnin og lætur verkin tala með bros á vör. Hrefna hefur lengi unnið ötult starf fyrir KA sem sjálfboðaliði og er frábær fyrirmynd fyrir aðra sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni sem mikilvægur hlekkur í að halda úti öflugu íþróttastarfi.

Guðmundur Bjarnar Guðmundsson - Skíðafélag Akureyrar

Guðmundur Bjarnar Guðmundsson er fæddur á Akureyri þann 19. september 1962. Guðmundur hefur í áratugi starfað fyrir Skíðafélag Akureyrar og áður í Skíðaráði Akureyrar. Hann hefur verið burðarás í starfi félagsins, setið í stjórn og sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið, verið ómetanlegur í mótahaldi félagsins og fjölmörgum öðrum verkefnum sem þarf til að halda úti öflugu barna- og unglingastarfi.

Guðmundur hefur í rúm 30 ár starfað að Andrésar Andarleikum þar sem hann hefur unnið að mótahaldinu með öllu því sem fylgir, t.d. tímatöku, skráningu, uppsetningu marksvæðis og brautarlagningu. Guðmundur hefur einnig unnið í kringum Hermannsgönguna og undanfara hennar meira og minna frá árinu 1994.

Sjálfur er Guðmundur mikil skíðagöngumaður og gengur sér til ánægju og er öðrum til fyrirmyndar, Guðmundur hefur til að mynda farið í fjöldann allan af Vasa-göngum í Svíþjóð.

Það er Skíðafélaginu mikill happafengur að hafa mann eins og Guðmund innan sinna raða sem er alltaf boðinn og búinn til aðstoðar, sama hvert verkefnið er.

Björn Halldór Sveinsson – Íþróttafélagið Þór

Björn Halldór Sveinsson er fæddur á Akureyri þann 10. janúar 1963. Björn lék á yngri árum knattspyrnu með Þór. Á ungdómsárunum skipti Björn yfir í körfuknattleik og lék hann lengi körfuknattleik með Þór og var einn af burðarásum liðsins í áraraðir.

Eftir að keppnisferlinum lauk þjálfaði Bjössi yngri flokka félagsins í körfu um tíma en hefur einnig verið einn öflugasti sjálfboðaliði körfuknattleiksdeildar Þórs. Sem slíkur var Björn um árabil einn öflugasti dómari deildarinnar og dæmdi jafnt leiki yngri flokka sem og leiki meistaraflokka.

Björn er einn þeirra sem er “maðurinn á bakvið tjöldin”, sá sem alltaf er hægt að treysta á og kalla til ef einhver verkefni þarf að vinna, hann er ávallt reiðubúinn og spyr aldrei hvað félagið geti gert fyrir sig, hann spyr “hvað get ég gert fyrir félagið mitt?”

Björn Halldór Sveinsson (Bjössi Sveins) hefur hlotið gull- og silfurmerki Þórs enda gegnheill Þórsari og sannur sjálfboðaliði.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan