Hátíð við Menningarhúsið í dag

menningarhus_undirbuningur_5Í dag, þriðjudaginn 1. ágúst, er boðað til hátíðar á Akureyri í tilefni þess að fyrsta skóflustunga að Menningarhúsinu verður tekin á uppfyllingunni við Torfunef. Unnið er nú af kappi við það að stika útlínur hússins með fánaborða og böndum til þess að fólk geri sér betur grein fyrir staðsetningu og umfangi þess.
Innan í hringnum verða sett upp tvö svið þar sem þau verða í byggingunni sjálfri og boðið verður upp á „Menningartertu" í líki hússins í tilefni dagsins.

Athöfnin hefst klukkan 17.00 með ávörpum Kristjáns Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra á Akureyri, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, og Sigurðar Hallgrímssonar, arkitekts hússins. Einnig verður skrifað undir samning við ÍSTAK sem byggja mun húsið og loks tekur bæjarstjórinn á Akureyri fyrstu skóflustunguna.

Þeir sem koma fram og skemmta gestum eru:

  • KK einn með gítarinn
  • Látbragðsleikarinn Kristján Ingimarsson
  • Málmblásturssveit úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
  • Dansarar úr danssmiðju Sigynjar Blöndal
  • Hljómsveitin Tortímandinn

Kynnir verður Magnús Geir Þórðarsson, leikhússtjóri LA.

Mætum öll!

Undirbúningur fyrir hátíðina stendur nú sem hæst.menningarhus_undirbuningur_1

menningarhus_undirbuningur_3

menningarhus_undirbuningur_7

menningarhus_undirbuningur_6

menningarhus_undirbuningur_4

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan