Félagarnir Bjarki Birgisson og Guðbrandur Einarsson komu til Akureyrar í gær á hringferð sinni um landið undir kjörorðunum "Haltur leiðir blindan". Nokkur fjöldi fólks slóst í för með þeim í Vaðlaheiðinni og við Leirunesti. Þeirra á meðal voru bæjarfulltrúar og bæjarstjórinn á Akureyri.
Þetta er mikið afrek hjá þeim félögum Bjarka og Guðbrandi því Bjarki er hreyfihamlaður og Guðbrandur nærri því blindur. Þeir láta það hins vegar ekki trufla líf sitt og reyna að sigrast á öllum þrautum. Það sýna þeir svo um munar með hringferðinni um Ísland. Myndirnar hér að neðan tala sínu máli.



