Hætt að senda út greiðsluseðla frá velferðarsviði

Akureyrarbær sendir ekki lengur út greiðsluseðla vegna reikninga frá velferðarsviði. Um er að ræða reikninga vegna húsaleigu í félagslegu leiguhúsnæði, stuðningsþjónustu, stoðþjónustu, heimsends matar og félagslegrar liðveislu. Innheimtukröfur munu því eftirleiðis eingöngu birtast í heimabönkum.

Þessi breyting er liður í að auka hagkvæmni í rekstri og gera ferlið um leið umhverfisvænna, m.a. með minni pappírsnotkun. Nú eru nær allir reikningaflokkar bæjarins orðnir rafrænir.

Í þessu sambandi er minnt á þjónustugáttina á www.akureyri.is sem veitir aðgang að ýmsum gagnlegum upplýsingum með einföldum og aðgengilegum hætti. Greiðendur hafa þar rafrænan aðgang að öllum sínum reikningum frá sveitarfélaginu. Greiðendur sem vilja áfram fá greiðsluseðil á pappír geta skilað inn umsókn um það í þjónustugáttinni.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan