Mynd: Sindri Swan.
Það er Gildagur á morgun, laugardaginn 3. júlí, með karnivalstemningu í Listagilinu.
Enginn aðgangseyrir verður að Listasafninu í tilefni dagsins, flóamarkaður verður settur upp í hluta götunnar frá kl. 14.30 til 16.30 og Götuleikhúsið bregður á leik kl. 15.
Margt margt fleira verður um að vera sem lesa má um HÉR.
Stærstur hluti Listagilsins verður lokaður fyrir bílaumferð milli kl. 14-17. Þó verður hægt að komast að bílastæðum efst og neðst í Listagilinu (sjá mynd að neðan).
Gestir Gildaga eru beðnir að deila skemmtilegum myndum með því að nota myllumerkið #gildagur og jafnvel líka #listagilid #hallóakureyri #alltafgottveðuráakureyri og #akureyri
Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu:
