Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 17. nóvember

Fundur bæjarstjórnar fer fram með fjarfundakerfi að þessu sinni. Mynd eftir Auðunn Níelsson.
Fundur bæjarstjórnar fer fram með fjarfundakerfi að þessu sinni. Mynd eftir Auðunn Níelsson.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 17. nóvember. Á dagskránni er meðal annars breyting á aðalskipulagi Krókeyrar og umræður um atvinnumál og endurskoðun leiðakerfis strætisvagna.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Að þessu sinni verður um fjarfund að ræða vegna samkomutakmarkanna. Eftir sem áður verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi og hægt að nálgast upptöku á vefsíðu bæjarins en upptökur eru aðgengilegar daginn eftir fund. Sjónvarpað er frá fundinum miðvikudaginn 18. nóvember kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.

Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan