Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 15. mars

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 15. mars. Á dagskránni er viðauki við fjárhagsáætlun 2022, deiliskipulag fyrir athafnalóðir sunnan Hlíðarfjallsvegar, starfsáætlun velferðarráðs og umræða um umferðaröryggismál á Akureyri. 

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu að Geislagötu 9 og er öllum opinn.

Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum. Athugið að ekki verður streymt frá fundinum að þessu sinni. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan