Ráðhústorg í jólabúningi. Mynd: María Helena Tryggvadóttir
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 15. desember. Á dagskránni er meðal annars síðari umræða um fjárhagsáætlun bæjarins 2021-2024, aðalskipulag á Tjaldstæðisreit, aðalskipulag Holtahverfis og deiliskipulag Holtahverfis norður.
Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Að þessu sinni verður um fjarfund að ræða vegna samkomutakmarkanna. Eftir sem áður verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi og hægt að nálgast upptöku á vefsíðu bæjarins en upptökur eru aðgengilegar daginn eftir fund. Sjónvarpað er frá fundinum miðvikudaginn 16. desember kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.
Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.