Fundur bæjarstjórnar fer fram með fjarfundakerfi að þessu sinni. Mynd: Auðunn Níelsson.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 6. október. Á dagskránni er meðal annars breytingar í nefndum, nýr samstarfssáttmáli bæjarstjórnar og fjárhagsstaða bæjarins.
Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Að þessu sinni verður um fjarfund að ræða vegna samkomutakmarkanna. Eftir sem áður verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi og hægt að nálgast upptöku á vefsíðu bæjarins en upptökur eru aðgengilegar daginn eftir fund. Sjónvarpað er frá fundinum miðvikudaginn 7. október kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.
Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.