Ljósmynd: María H. Tryggvadóttir
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 19. desember næstkomandi kl. 16.
Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn. Þetta er síðasti bæjarstjórnarfundur ársins 2023. Á dagskránni eru meðal annars húsnæðisáætlun bæjarins 2024 og umræða um niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.
Hér er hægt að skoða dagskrá fundarins.
Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur hér á heimasíðunni að honum loknum. Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum.