Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 12. apríl kl. 16. Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn.
Á dagskránni er meðal annars fyrri umræða um ársreikning Akureyrarbæjar fyrir árið 2021, endurskoðun á mannréttindastefnu, reglur um stofnframlög, nýtt deiliskipulag fyrir stofnana- og athafnasvæði við Súluveg, umræða um hlutverk Sjúkrahússins á Akureyri og fleira.
Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum. Athugið að ekki verður streymt frá fundinum að þessu sinni, en upptaka verður gerð aðgengileg að honum loknum.