Framkvæmdir við Mýrarveg vestan við Verkmenntaskólann

Í vikunni var hafist handa við gerð tveggja nýrra biðstöðva SVA á Mýrarvegi vestan við Verkmenntaskólann á Akureyri og varanlegri þrengingu götunnar á sama stað. Þar með verða tvær eldri biðstöðvar lagðar af, önnur við Jörvabyggð á leið 1 og hin við Mímisbraut á leið 5. Aðgengi að lóð VMA frá nýju biðstöðvunum verður öruggt og hnökralaust sem sjá má á meðfylgjandi mynd.

Markmið framkvæmdanna er að bæta öryggi gangandi vegfarenda og notenda strætó. Meðan á þeim stendur verður hluti götunnar þrengdur við framkvæmdasvæðið og því geta orðið tafir á umferð á svæðinu.

Biðstöðvarnar verða teknar í notkun þegar þær verða tilbúnar á næstu vikum en endanlegum frágangi á svæðinu og gönguleið að VMA lýkur á vordögum 2024.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan