Forvitnilegir tónleikar í Akureyrarkirkju

Óskar Guðjónsson saxófónleikari og Skúli Sverrisson bassaleikari halda tónleika í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 26. september kl. 20. Þeir félagar hafa starfað saman í 15 ár og gefið út tvær plötur, Eftir þögn og The box tree, sem báðar hafa unnið til íslensku tónlistaverðlaunanna sem plata ársins í flokki jasstónlistar.

Skúli hefur að mestu leyti starfað í Bandaríkjunum með mörgum þekktum listamönnun eins og Allan Holdsworth, Laurie Anderson, David Sylvian og Blonde Redhead. Óskar er einn af fremstu jasstónlistamönnum landsins og tónlist hans hefur vakið athygli um víðan heim. Hann hefur leikið með fjölda hljómsveita en helst má nefna ADHD og Mezzoforte. Tónlist þeirra Skúla og Óskars er lagræn og hljómfögur þar sem einstök nálgun hljóðfæraleiks þeirra nýtur sín sem allra best.

Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Listvinafélag Akureyrarkirkju. Aðgangseyrir er 1.500 kr.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan