Forsala vetrarkorta í Hlíðarfjall er hafin og stendur fram til opnunar á skíðasvæðinu. Stefnt er að því að opna skíðasvæðið 15. desember en að sjálfsögðu verður opnað fyrr ef aðstæður leyfa. Kortin eru seld í netsölu á heimasíðu Hlíðarfjalls. Smelltu hér til að kaupa vetrarkort á forsöluverði.
Einnig er athygli vakin á því að Akureyringum gefst enn kostur á að kaupa Lýðheilsukort gegn bindingu í eitt ár sem veitir handhöfum kortsins árskort að Sundlaugum Akureyrar, Hlíðarfjalli og Skautahöllinni á Akureyri. Hér eru nánari upplýsingar um Lýðheilsukortið.