Flutningslínur raforku og tengivirki við Kífsá

Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í tillögunni er gert ráð fyrir nýrri háspennulínu, Blöndulínu 3, tengivirki við Kífsá og háspennustrengjum að tengivirki á Rangárvöllum og þaðan að Krossanesi.

Tillöguuppdráttur með greinargerð og umhverfisskýrslu mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 1. febrúar til 15. mars 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Flutningslínur raforku og tengivirki við Kífsá

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 fimmtudaginn 15. mars  2012 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

F.h. Akureyrarkaupstaðar,

Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan