Fjölskylduhátíðin í Hrísey verður haldin helgina 21-23. júlí. Vonandi finna sem flestir eitthvað við sitt hæfi og koma til með að eiga góða helgi í Perlunni okkar, Hrísey.
Föstudagur 21.júlí
10.00 Miðasala hefst.
15.00 Setningarathöfn
Ómar Hlynsson kynnir hátíðarinnar
setur fjölskylduhátíðina 2006.
Blessun, séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir.
Leikfélagið Krafla
Leikskólabörn syngja
Ingó töframaður
Kór syngur nokkur lög
Unnur Birna og Sólveig spila á fiðlu og píanó
Kynning á Brekkusöngslagi
Kaffisala í hátíðartjaldi á vegum kvenfélagsins til kl 17.00
16.00 Leiktæki opna og verða opin til kl 19.00
16.30 Kassaklifursæfingar til kl 18.00
18.00 Óvissuferð barna
18.30 Kveikt upp í grillum á hátíðarsvæði
20.00 Vitaferð
21.00 Dansleikur fyrir alla fjölskylduna með Idolstjörnunni
Ínu til kl 01.00
22.00 Óvissuferð ( fyrir 18 ára og eldri)
Brekka Trúbadorar spila fram á nótt.
Fossinn Opið fram á nótt.
Laugardagur 22. júlí
09.00 Sundlaug opnar
10.00 Miðasala hefst
Leiktæki opna og verða opin til kl 19.00
10.30 Keppni í kassaklifri
11.00 Vitaferð
Kaffisala í hátíðartjaldi á vegum kvenfélagsins til kl 17.00.
13.00 Söngvakeppni barna
Fitness keppni fyrir 13-15 ára
14.00 Lyftarakeppni
Dráttarvélasýning á svæðinu
15.00 Fjölskylduskemmtun á hátíðarsvæði
Tóti tannálfur og Jósafat mannahrellir
Palla pera og Guffi banani úr Ávaxtakörfunni
Ingó töframaður
Ómar Ragnarsson
Leynigestur
Leikfélagið Krafla
Kynning á Brekkusöngslagi 2006
17.00 Ökuferð um þorpið með Tóta tannálfi og Sölva súra
Ratleikur
18.30 Kveikt upp í grillum á hátíðarsvæði
Hópakstur dráttarvéla um þorpið
19.30 Vitaferð
20.30 Kvöldvaka
Hríseyjarmær syngur nokkur lög
Ómar Ragnarsson
Snorri málari
Helga Braga og Steinn Ármann
Oddur H.Halldórsson
Kynning á brekkusöngslagi 2006
Flugmódelsýning ef veður leyfir
Að lokinni kvöldvöku verður kveikt upp í varðeldi, brekkusöngur og flugeldasýning.
24.00 Dansleikur með sveiflukónginum Geirmundi Valtýssyni
Brekka músík fram á nótt.
Fossinn opið fram á nótt
Sunnudagur 23. júlí
09.00 Sundlaug opnar
11.00 Leiktæki opna og verða opin til kl 17.00
13.00 Stangveiðikeppni
Ökuferð um þorpið á dráttarvélum
15.00 Vitaferð
17.00 Vitaferð
Hátíð lýkur.
VERÐSKRÁ
Aðgangseyrir er 2000 krónur fyrir 16 ára og eldri. ( fæðingarár 1990)
Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum.
- Leiktækjaland (aldurstakmark 14 ára)
- Armband, gildir út hátíðina keypt á föstudegi eða laugardegi kr 1.500.
- Armband keypt á sunnudegi kr 800.
- 15 mínútur= 1 spesía kr 200.
FERÐIR
Vitaferð, fullorðnir, 16 ára og eldri kr 1000. Börn kr 500.
- Ökuferð um þorpið kr 500.
- Óvissuferð barna kr 700.
- Ökuferð með Tóta tannálfi og Sölva súra kr 500.
- Óvissuferð ( 18 ára og eldri) kr 2000.
Ferjan fer aukaferðir kl 01.00 aðfaranótt laugardags og kl 01.00 og 04.00 aðfaranótt sunnudags.
ATH!
Þeir sem hafa hug á því að koma með tjaldvagn eða fellihýsi í eyjuna þurfa að panta flutning hjá ferjunni í síma 695-5544. Flutningur á tjaldvagni kostar kr. 2500 en á fellihýsi
kr. 3000.