Finnst þér gaman að semja tónlist?

Þátttakendur Upptaktsins 2022 á uppskerutónleikum í Menningarhúsinu Hofi. Mynd tekin af síðu SSNE.
Þátttakendur Upptaktsins 2022 á uppskerutónleikum í Menningarhúsinu Hofi. Mynd tekin af síðu SSNE.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Upptaktinn – Tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna.

Í Upptaktinum er lögð áhersla á að hvetja börn og ungmenni til að semja tónlist og styðja þau í fullvinnslu hugmyndar. Ungmennin sem komast áfram vinna að útsetningum undir leiðsögn reyndra tónlistarmanna. Að þessu ferli loknu verða til ný tónverk sem flutt verða á tónleikum og varðveitt með upptöku.

Tónlistarstjóri er Greta Salóme tónlistarkona.

Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Hörpu og styrkt af Sóknaráætlun SSNE.

Nánari upplýsingar á mak.is. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan