Auglýsing fyrir Evrópska kvikmyndadaga á Akureyri.
Evrópskir kvikmyndadagar verða nú haldnir í annað sinn á Akureyri og hefjast 24. október. Það er kvikmyndaklúbburinn KvikYndi sem
stendur fyrir hátíðinni í samstarfi við Evrópustofu, Sambíó Akureyri og Bíó Paradís. Þrjár myndanna eru með
enskum texta en opnunarmyndin er með íslenskum texta. Ókeypis aðgangur er að öllum sýningunum á meðan húsrúm leyfir en hver mynd er
aðeins sýnd einu sinni.
Sýndar verða fjórar myndir sem segja má að sé brot af því besta frá Evrópskri kvikmyndahátíð sem haldin var
í Bíó Paradís fyrir skömmu. „Evrópskir kvikmyndagerðarmenn eru fremstir meðal jafningja í hinum fjölbreytilega heimi kvikmyndanna og
við erum afar stolt af því að geta boðið Akureyringum að sjá nokkrar af nýjustu og ferskustu evrópsku myndunum,“ segir Arnar Már
Arngrímsson, formaður KvikYndis og bætir því við að myndirnar séu sérstaklega valdar með fjölbreytileikann í huga en einnig
séu allar myndirnar margverðlaunaðar á ýmsum kvikmyndahátíðum.
Hátíðin hefst með viðhöfn með sýningu hinnar margverðlaunuðu belgísk/hollensku myndar The Broken Circle Breakdown sem farið hefur
sigurför um Evrópu og er jafnframt tilnefnd til áhorfendaverðlauna Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2013. Allir eru velkomnir á opnunarsýninguna sem fer
fram fimmtudaginn 24. október og hefst með fordrykk kl. 19.15. Hinar myndirnar þrjár verða svo sýndar yfir helgina kl. 18, föstudag, laugardag og
sunnudag.
Dagskrá Evrópskra kvikmyndadaga á Akureyri:
Fimmtudagur 24. okt. kl. 20.00
The Broken Circle Breakdown (Belgía / Holland 2012)
111 MÍN. - ÍSLENSKUR TEXTI.
LEIKSTJÓRI: Felix Van Groeningen.
AÐALHLUTVERK: Veerle Baetens, Johan Heldenbergh, Nell Cattrysse.
The Broken Circle Breakdown er nýjasta mynd leikstjórans Felix van Groeningen. Myndin er byggð á vinsælu samnefndu leikriti eftir Johan Heldenbergh og Mieke Dobbels og
segir sögu Elise og Didier, tveggja mjög svo ólíkra einstaklinga sem kynnast fyrir tilviljun. Þau verða ástfangin, gifta sig og Elise verður
óvænt ólétt. Þegar barn þeirra greinist með ólæknandi sjúkdóm reynir á samband þeirra. Myndin hefur farið
sigurför um Evrópu og meðal annars hlotið verðlaun fyrir bestu evrópsku myndina af Europa Cinemas Label og áhorfendaverðlaun Berlinale 2013. Myndin er
tilnefnd til áhorfendaverðlauna Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2013.
Föstudagur 25. okt. kl. 18.00
Oh Boy (Þýskaland 2012)
85 MÍN - ENSKUR TEXTI.
LEIKSTJÓRI: Jan Ole Gerster.
AÐALHLUTVERK: Tom Schilling, Katharina Schüttler, Justus von Dohnányi.
Oh Boy er margverðlaunuð þýsk grínmynd frá 2012 og er frumraun leikstjórans Jan Ole Gerster. Myndin er svarthvít og segir frá
sólarhringi í lífi Niko, ungs manns sem er atvinnulaus og hættur í námi, þar sem hann rekur stefnulaust um götur Berlínar og allt
virðist ganga á afturfótunum. Myndin hefur hlotið fjöldann allan af verðlaunum, meðal annars virtustu verðlaun þýska kvikmyndaiðnaðarins,
Lola verðlaunin, 2013 fyrir bestu myndina, besta handrit, besta leikara í aðalhlutverki (Tom Schilling), besta aukaleikara (Michael Gwisdek) og bestu kvikmyndatónlistina.
Myndin er tilnefnd til áhorfendaverðlauna Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2013.
Laugardagur 26. okt. kl. 18.00
Hunang (Miele) (Frakkland / Ítalía 2013)
100 MÍN - ENSKUR TEXTI
LEIKSTJÓRI: Valeria Golino.
AÐALHLUTVERK: Jasmine Trinca, Carlo Cecchi, Libero De Rienzo.
Irene býr ein og lifir heldur einangruðu lífi. Hún vinnur við aðhlynningu dauðvona fólks og aðstoðar það m.a. með lyfjagjöfum.
Dag einn þá gefur hún sjúklinginum Grimaldi sem er nýlagstur inn of stóran lyfjaskammt til þess eins að sannreyna það að að hann
sé í raun og veru langt frá því að vera veikur. Samband Irene og Grimaldi er þrungið spennu og þróast á þann veg að
líf hennar verður aldrei samt. Myndin hlaut verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2013. Hún er einnig tilnefnd til Lux
verðlaunanna árið 2013.
Sunnudagur 27. okt. kl. 18.00
Kvöl (Child‘s Pose) (Rúmenía 2012)
112 MÍN - ENSKUR TEXTI
LEIKSTJÓRI: Călin Peter Netzer.
AÐALHLUTVERK: Luminita Gheorghiu, Bogdan Dumitrache, Natasa Raab.
Kvöl er rúmensk kvikmynd eftir leikstjórann Călin Peter Netzer. Myndin segir sögu Corneliu, stjórnsamrar móður sem sér sér leik á
borði til að ná stjórn á fullorðnum syni sínum eftir að hann er ákærður fyrir manndráp. Myndin var frumsýnd á
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín þar sem hún hlaut hin virtu Golden Bear verðlaun árið 2013.